17.3.2012 | 14:57
ZzzzZZzzkipulag!
Oh boy..
Nú var ég að búa mér til skipulag fram að sumarfríi. (53 dagar í það). Var ákaflega glöð með hvað það styttist í frelsið alveg þar til ég fattaði hvað ég á óendanlega mikið eftir af lærdómi svo ég geti nú með góðri samvisku farið í próf! Ég veit hreinlega ekki hvað ég á að halda... best að segja sem minnst, hysja upp um sig og láta verkin tala með nefið ofaní bók.
Mér finnst svo gaman að búa til skipulög! Væri alveg til í að vera bara skipuleggjari að ævistarfi, ég held það sé samt ekki hálauna jobb ..
Væri t.d. hrikalega mikið til í að vera bara "wedding planner", hversu endalaust skemmtilegt væri það nú!?
Ahh já..
En nei, ég fæ víst ekkert borgað fyrir eina skipulagið sem ég þarf að sjá um - sjálfa mig þ.e...
Var að prenta út glósur úr þeim fyrirlestrum sem búnir eru í Stjórnsýslurétti. Er nú með allt útprentað, lesefni og fyrirlestra.. (ég er semsagt komin með hálfan Amazon skóginn hérna á borðið til mín... ætli restin verði ekki mætt þegar ég fer að prenta út eignarréttarfyrirlestrana..)
Þetta þarna vinstra megin er lesefnið (til viðbótar við þetta eru svo 3 bækur og 1 hefti) og þetta hægra megin eru útprentaðir fyrirlestrar með mínum glósaviðbótum... en sú gleði!
Jæja, ætla að hefjast handa
Eigið gleðilegan laugardag gott fólk
Athugasemdir
Þú mátt skipuleggja brúðkaupið okkar :D
Baldvin (IP-tala skráð) 17.3.2012 kl. 15:01
Takk ljúfur :*
Berglind Hermannsdóttir, 17.3.2012 kl. 15:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.